Þrifalegi Þvættingur

Eizzi Killah

17.10.2008 22:07:19 / Eizzi

Það var lóðið!

jæja, föstudagurinn genginn í garð og gaywaves að tröllríða miðbænum, sá einmitt eitthvað technoband í kastljósinu áðan sem er að spila.. hét eitthvað.. chinamen in new york eða eitthvað.. man það ekki, en það var ekki ljúft að hlusta á það :)

ég veit nú ekki alveg hvað ég ætla að skrifa.. en jú, er ekki ennþá ´búinn að fá pening frá tryggingarstofnun.. sjúkradagpeninga sem eg á rétt á, búinn að bíða núna í tvær vikur.. og fékk síðan bréf í gær um það að þeir "getu ekki afgreitt umsókn mína að svo stöddu af sökum nýrrar reglugerðar (í býgerð) um sjúkradagpeninga".. pælið í fokking fávitum! ég veit ekki hvað í andskotanum þessi helvítis fíbbl eru að gera en mér finnst það ekki koma mér við og þeir eiga að borga þessa peninga á réttum tíma því það er fólk sem stólar á þessa peninga, mér finnst þetta allaveganna helvítis fávitaskapur.

en svona til að fá einhverja útrás þá skellti ég mér í europris áðan og keypti mér lóð sem ég ætla að lyfta kanski bara núna því ég hef ekkert betra að gera.. anyway, ef ég væri corpsegrinderinn þá segði ég "this song is dedicated to tryggingastofnun/ríkið, I WILL KILL YOU!!!" tkk og bless

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 10:40:24 / Eizzi

Whale Care

Já, góðan daginn.. ákvað að skella inn nokkrum línum, hvort einhver nenni að lesa þær verður að koma í ljós, er ennþá kúl að blogga eða??

Skítaveður maður! Í svona veðráttu þá þakka ég guði fyrir að vera ekki fugl, rolla eða hjólreiðamaður.. rok og rigning er ömurleg veðurblanda! En fyrir utan þetta veður þá er allt gott að frétta af mér, nýstiginn út úr 38 daga meðferð, hress sem fress.. ég geng nú ekki svo langt að kalla mig nýjan mann eins og sumir gera eftir meðferð en ég hef allaveganna lært margt sem getur hjálpað mér að verða nýr og betri maður. Ég mæli með þessu við allar fyllibyttur og dópista, þetta er virkilega gott prógram. En ég er ss búinn að vera edrú í 47 daga í dag, sem er persónulegt met síðan ég byrjaði að drekka.
 
Búinn að vera mestmegnis bara heima, tjilla með familíunni og Val Kára sem er búið að vera mjög næs, gott að geta eitt sunnudegi með barninu sínu óþunnur. En ég er kominn með ritstíflu.. ég gæti röflað meira um meðferðina og áfengi, en ég nenni því ekki.. ég er að passa mig að gera þetta ekki að karakterseinkenni að vera röflandi bitri óvirki alkahólistinn sem enginn nennir að hlusta á, sumir sem falla í þá gryfju held.. en ekki ég! þannig að ég segji bara takk fyrir mig. og takk fyrir að lesa ef þú gerðir það. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 21:43:43 / Eizzi

Fyrsta blogg í.. jah.. allaveganna ár

ég veit ekki hvort það er móðins að blogga lengur.. en ég hef einmitt ekki bloggað í rúmlega ár eða svo. en Andrinn kom yfir mig, sló mig kinnhest og skipaði mér að skrifa bloggfærslu. Það kemur síðan í ljós hversu gáfuleg hún verður.
 
Margt hefur drifið á daga mína síðastliðið ár og er ég nú orðinn faðir með allri þeirri gríðarlegu ábyrgð sem því fylgir. Einnig er ég kominn með nýja vinnu sem matargerðarmaður hjá því góða fyrirtæki serrano og bý ég þar til ljúfengar burtini rúllur og ýmislegt fleira.

En nóg af vitleysu.. ég er búinn að gera ýmislegt.. en það sem stendur hæst er eistnaflug. Við lögðum af stað þrír kátir piltar úr bænum (ég, himmi og atli) á fimtudegi og keyrðum lengi, lengi þar til á áfangastað var komið.. síðan var drukkið stíft og lengi þangað til að fram á morgun komið en þá sögðu bændur stopp og fengu sér lúr í tjaldi sínu. En það var sungið og trallað alla helgina, en aðalega var ræjað.. og það rækilega og það þurfti ekkert að ræða það neitt frekar. við tókum slagara með queen, jet black joe, duran duran, justin timberlake og mörgum góðum og textar voru vandfundnir.

En við allaveganna ræjuðum, drukkum og kíktum á tónleika, og þetta var allt mjög hressandi.. hápunktur ársins hjá mér en sem komið er.. en við keyrðum síðan heim á sunnudeginum ekki jafn kátir piltar eftir erfiða helgi af ræji og vitleysu..

eiður.. yfir og út

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 19:13:24 / Eizzi

Litli Eizzi

Jæja, eins og margir vita þá er hún hrafnhildur kominn með lítinn gaur í magann. og hann er kominn með barnalandssíðu.. hún er

http://www.barnaland.is/barn/52973

hér.,.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 23:31:09 / Eizzi

Suss..

nú fór ég inná minnsirkus í gær.. og þessi síða maður.. 90% af fólkinu þarna eru 16 ára beyglur að glenna sig og auglýsa hversu miklar hórur þær séu, og þær muni sko pottþétt gera hvað sem er fyrir þig.. ef þú átt honda civic.. og hin 10 prósentin eru gaurar á aldrinum 25-50 að perrast í þeim. Ég vil ekki hljóma eins og gamall kall.. en svona var þetta nú ekki þegar ég var 16! :D

Myndirnar sem að eru þarna inni eru svo mikið hórumaterial að það hálfa væri hellingur.. ég var að pæla hvað í fjandanum fór úrskeiðis í uppeldinu á þessum heimsku hórum, svo ég segji nú bara eins og þetta er :) þessar stelpur ættu að vera að leika sér með ponyhesta, og prjóna.. eða eitthvað, en í staðinn eru þær að leika sér með stupid spoiled whore video playset.. pakki með webcam, digital cameru með nightvision og internettengingu (..southpark)

En nóg um það.. ég er veikur heima og hef ekki mikið annað að röfla um.. þessar stelpur ættu bara að fróa sér á frostpinna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 20:08:39 / Eizzi

Love me two times 0_o

jæja.. það er vægast orðið ansi langt síðan ég skrifaði síðast hér á þessu indæla bloggi mínu, ég veit ekkert hvort að einhver hefur fyrir því að lesa þessa vitleysu mína.. en ég ætla nú samt að láta vaða, það er nokkuð ljóst.. að enginn verður óbarinn biskup! ég er þar engin undantekning án þess að vera biskupsefni :)

En ss. síðustu 2-3 mánuði hef ég nýtt í það að vinna og vera með hröbbu á kvöldin, en nú er öldin önnur.. því að hrabba er búin að yfirgefa mig til lands engjanna. Þar sem hún stundar háskólanám, í æsku var hrafnhildur alltaf mjög blíð stúlka og mörgum líkaði við, einning..... DJÓK, en ekki örvænta, ég ætla að skrifa ævisöguna hennar hérna seinna :D

En ss.. ég hef ekkert að segja basicly 0_o jæja..


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 19:13:16 / Eizzi

Voice of unreason

halló.. ég hef ekki bloggað í.. ég veit það ekki, en það er ansi langt síðan allavega. Ég hef ekki get margt eða afrekað á þessum tíma sem ég hef ekki verið að blogg, nema sjá allar indiana jones myndirnar aftur.. og þetta væru bestu myndir í geimi ef að þeir hefðu slept HELVÍTS grjónakrakkanum í The temple of doom, aldrei á ævinni hef ég verið jafn pirraður á karakter úr bíómynd, það ætti að krossfesta þetta kvikindi, en þetta er alveg laust við rasistma. maður á ekki að blogga þegar maður hefur ekkert að skrifa um.. en ég gerði það nú samt, ég skrifa eitthvað meira þegar hausinn á mér gefur meira af sér.

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 21:18:52 / Eizzi

Vótsí

elli töff

ég var að renna í gegnum gamla bloggið mitt og rakst á þessa mynd.. gaman af þessu


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 18:21:14 / Eizzi

Strange Deje Vu

Skemmtilegt lag með dream theater og rosa sóló líka :) en ég er einmitt búinn að vera að fá ótrúlega mikið af þessum Deja Vúum, fékk alveg 5 á tveim dögum sem að er rosalegt miðað við það að venjulega fæ ég þetta ekki nema svona 1-2 á ári.. hvað er að gerast í hausnum á manni þegar maður fær þetta? ég hef heyrt nokkrar mismunandi útgáfur á því.. að maður taki upplýsingarnar frá augunum mishratt inn.. og að maður sé að upplifa tilfinningu sem að maður hefur ekki fundið fyrir lengi.. ég kann þetta ekki en mér finnst finnst Deja Vu allavegana fyndið fyrirbæri :)

En ég skrapp til Akureyrar síðasta fimmtudag, keypti mér ekki kók í bauk.. en ég fór nú samt.. með vinnunni í námsferð að skoða leikskóla og fara á fyrirlestur. Þetta  var þvílíkt næs, flott hótel, það var reyndar kúkalykt í herberginu mínu sem að  var ekki eftir minn kúk.. en flott hótel engu að síður :D Og leikskólarnir þarna voru ógeðslega flottir, greinilegt að akureyringar leggja meira í æskuna en skítalabbarnir í kópavogi.. :)

En ég er hröbbulaus þessa stundina og fæ því ekki að heyra gullmola eins og að mammútar séu risaeðlur :D En það stendur ekki lengi þannig að ég get geymt það að gráta yfir því hvað ég eigi ógeðslega erfitt líf :) ég er ekki mikill rithöfundur þannig að ég ætla að segja þetta gott í bili..


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:36:20 / Eizzi

Nyja bloggið mitt

þeim hjá blogcentral tókst að plata mig inná minnsirkus með því að segja að þetta væri sennilega það besta sem ég ætti eftir að gera í dag.. þannig að ég sé ekki fram á mjög litríkan dag. En Eins og þið kanski sjáið, eða ekki.. þá er síðan í felulitum, þannig að ef að þið sjáið ekki síðuna yfir höfuð, þá er það sennilega það.

eizzi.minnsirkus.is .. sidan ss

En í fréttum er þetta helst að ég sit hérna veikur heima og hef ekki skapaðan hlut að gera nema sitja hérna sveittur fyrir framan tölvuna og reyna að koma einhverju gáfulegu frá mér, sem að hefur oft reynst mér erfitt í gegnum tíðina.. ekki það að ég sé eitthvað heimskur, ég vil bara halda gáfulegu hlutunum fyrir sjálfan mig ;)

En ég vona að það lesi einhver þetta blogg mitt því að ég stefni á meiri skrif og jafnvel skemmtilegri bloggfærslur! takk! :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 23:04:37 / Eizzi

Seven Sundays

vikan er frábært fyrirbæri.. þegar ég var yngri þá lifði ég fyrir helgarnar, en eftir því sem að maður eldist og þroskast (þótt að það meigi deila um það :o) þá fer maður að kunna að meta dagana meira meira eftir hverri vikunni.. eða nei, þetta gerist kanski ekki það hratt, en mér er farið að líka við ca. 80% af vikunni. Það er nokkuð augljóst afhverju ég dýrka helgar, því að um helgar þarf maður.. eða ég.. ekki að sinna neinum skyldum, nema drekka kanski, og gera ekki neitt.

En síðan eru miðvikudagur, fimtudagur og föstudagur.. en ég ss. fíla miðvikudagskvöld því að ég veit að það er að koma fimtudagur, og þá er ekki nema einn dagur í föstudag, og á föstudeginum þarf maður bara að vinna í 8 tíma.. og.. ég veit það ekki.. ég þarf ekki að útskýra það neitt betur, föstudagar eru bara bestir :)

Enjá sjitturinn titturinn.. ég var að koma inn áðan og labbaði inn í forstofu og fann einhverja plastbræðslulykt, gargaði á arnór og eitthvað "arnór.. hvaða lykt er þetta?" hann eitthvað "hvað ertu að spyrja mig?!" síðan labba ég inn og horfi inn í herbergið mitt þar sem að arnór situr eitthvað dofinn að spila quake.. og ég sé svart reykský fyrir aftan hausinn á honum, þá hafði hann ss ekki tekið eftir því að lampinn sem er fyrir aftan stólin var búinn að bræða sig nokkurnveginn í gegnum hann.. ég er ekki einn um að vera utan við mig í þessari familíu :D

En ég ætlaði nú að reyna að skrifa eitthvað af viti hérna.. ég bara kann það ekki, og það er ekkert að gerast eiginlega nema ég var að eignast nýja kærustu, hún er með stórt tannhold.. sem að skín í þegar hún brosir, hún var í danmörku í mars á þessu ári og hún á kunningja í Englandi.. og hún á sér ekki nafn, en ég elska hana þrátt fyrir það!


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 18:17:07 / Eizzi

hoh!

þetta nýja lúkk er ógeðslega kúl.. skiluru..

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 17:51:01 / Eizzi

bíddu nú við..!

þarf maður allt í einu að standast litblindupróf til að kommenta á blog.central?! afhverju í fjandanum eru þessir helvítis stafir? :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 23:30:44 / Eizzi

Sunnudagur

"Searching for yourself is like looking for the house you stand in
How could you possibly find it?
It's everywhere
It's all you know
And there are no other points of reference"

þessir sunnudagar eru svo steyktir.. sko.. það sem að ég geri á sunnudögum.. ég fæ mér að drekka, og síðan er það bara brainstorm þangað til að ég er búinn að komast að einhverri geðveikri niðurstöðu.. þetta eru dagarnir sem að maður notar til að reyna að koma skipulagi á hausinn á sér fyrir nýja viku.. þeir eru alveg crucial dagar sko :D en ss, vá hvað maður getur bullað.. ég  veit ekki hvar ég væri ef að það væru ekki sunnudagar :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 18:33:12 / Eizzi

Don't damn me

Jæja.. humm.. þriðjudagur, og sólin skín eins og hún hefur sjaldan gert áður og maður er í nokkuð góðu skapi, því að á morgun fæ ég pening og vonandi nóg af honum þótt ég geri ekki ráð fyrir því.

En ss.. ég fór út til útlanda í þarsíðustu viku :) og mér tókst að ferðast alveg sjálfur og var ekki rændur eða neitt, en ég var komin með mental myndband af því þegar ég sparkaði byssunni úr höndunum á múslimanum, roundhouse kick Chuck Norris style babe! en það kom ekkert til þess sko.. annars hefði ég ekki viljað vera byssumaðurinn :D

En þetta var annars alveg fínasta ferð, góður matur, ódýr bjór, nægur svefn og síðan hitti ég líka hröbbu (mína?:) og já, bara kreyzí you know.. en okey, ég ætla að snæða saltkjöt og baunir, takk takk... takk.. viljiði hætta að klappa!.. fíbbl ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Könnun
Hvaða veður finnst þér verst?